Já ástæðan f. því að maður er hérna í Ástralíu er víst námslega séð, ekki bara að leika sér og sleikja sólina. Nú styttist í prófin og þá einsog allir sem hafa gengið menntaveginn kannast við, að þá er skilafresturinn f. verkefnin að renna upp. Þannig að nóg að gera þessa dagana. Var að klára minn hluta í Beta útreikningum f. Westfield Group fyrirtækið í fjármálakúrsinum sem ég er að taka. En svo hitti ég Sean+Ryan, frá Kína, Vena frá Laos og Thao frá Vietnam á miðvikudaginn og við púslum þessu saman til að skila á föstudaginn. Þau settu það í mínar hendur að lesa verkefnið yfir, málfræðilega þar sem þau standa ennþá í þeirri trú að ég sé Ástrali. Síðan er það bara eitt stórt verkefni, netpróf og eftir það allt get ég farið að einbeita mér og reyna að undirbúa mig f. próftörnina. Get nú ekki sagt að ég hlakki beint til en maður verður víst að massa sig í gegnum þetta.
Ætla að fara í háttinn núna, svo ég geti byrjað morgundaginn snemma og byrjað að skipuleggja komandi vikur,
kv. námsmaðurinn
Monday, May 12, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

1 comment:
Ætli ég verði ekki að commenta hjá þér til að láta þér líða betur. Þú massar þetta, skír strákur!
Fékk loks bréf hérna frá Visa-gæjunum og þeir eru að leyfa mér að taka næsta skref sem eru góðar fréttir...samt langt í land!!! Keep the faith
Post a Comment