
Tímarnir breytast og mennirnir með.....já ekki áttu margir von á því að hann Hilmar Ingimundarson myndi vakna fyrir allar aldir til að byrja að læra? En jú viti menn, síðustu tvo daga hefur umtalaður einmitt vaknað fyrir klukkan 8 (já að morgni) og aulast útá svalir til að læra. Og það sem meira er, því meira sem hann lærir þeim mun skemmtilegra verður það, kannski er hann bara seinn að fatta það, en betra seint en aldrei, svona í miðju master námi. Ég er búinn að koma mér rosalega vel fyrir útá svölum hjá okkur með allt lærdómsdótið. En við erum með svo stórar svalir að þær skiptast í tvennt, annars vegar þar sem hægt er að loka alveg fyrir og svo opnar svalir. Þannig að það fer vel um mig þarna úti, nóg pláss og stórt borð. Eina er að það getur verið kalt snemma á morgnana en það heldur manni þá bara vakandi, og svo þegar líður á daginn að þá skellur sólin beint þarna inn og þetta getur breyst í gufubað. Svona uppúr 1 á daginn byrjar sólin að glitta inn og er alveg þar til hún sest um 5:30. En það er ráð f. því, heimatilbúin gluggatjöld, eða teppi sem er hent upp sem reddingu.
Jæja, þá er bara að vona að spenningurinn f. lærdómnum endist, langur dagur á morgun mánudag og líka þriðjudag. En þá daga er ég farinn í skólann með lestinni 9:21, komin á Redfern station um 9:45, þar sem localinn segir að allt hyskið sé og Aboriginal fólkið með vandræðin sín. Er síðan kominn í skólann 5-10 mínútum seinna. Tími frá 10-13, og í eyðu frá 13-18, og síðan í tíma til 21. Næ vanalega lestinni síðan aftur heim um 21:28 og er komin heim í kotið um hálftíma seinna.
Einsog skáldið sagði í einu laginu, "....times they have changed me, but I cant change time"
kv.Himmi

2 comments:
Var það Bowie sem á þessa laglínu? Vona að þú sért kaffidrykkjumaður til að njóta morgnana jafnvel enn betur!!!
Þú getur komið hingað að æfa þig í þokunum ef þú villt. Ein góð 5.11a A4 ekki svo langt frá húsinu.
Ekki læra yfir þig.
Freon
Ha!
Ég man þá daga þar sem þú böggaðir mig á því að þurfa alltaf að vera að læra...
Svo man ég líka þá dag þar sem þú böggaðir Bjarna á að vera alltaf að læra...
Þú ert bara svona seinþroska!
Gott á þig!
Kveðja
Gaui -sem stimplar sig út kl 17:01 á föstudögum-
Post a Comment