Thursday, November 6, 2008

Ný Sýn

Já eigandi gleraugnaverslunarinnar Sjónar virðist vera að gefa íslendingum nýja sýn í baráttunni við fjármálakreppuna sem gengur yfir landann.

Markus Klinger frá Austurríki segir að íslendingar kunni ekki að mótmæla og hafi því ákveðið að leggja sitt á vogarskálarnar.

Var á spjalli við svisslending og þjóðverja nú í vikunni og þegar umræðan kom að Íslandi og þeim vandræðum sem við glímum við að þá höfðu þeir ekki hugmynd aðra en þá að Ísland væri gjaldþrota og í alvarlegri fjármálakreppu. Annað hvort var áhuginn ekki meiri, umfjöllunin ekki næg eða önnur skýring. En þegar ég sagði þeim frá hryðjuverkalögunum og að við hefðu verið á palli með Sýrlandi og fleiri löndum að þá ráku þeir upp stór augu og fannst það ótrúlegt. Trúðu því ekki að nokkur þjóð léti þetta yfir sig ganga og hvað þá að einhver þjóð skuli leggja slíkt á aðra vestræna þjóð, svo ekki sé talað um aflsmuna misræmi sem þeim fannst vega mikið einnig.

En já þetta segir mér að við íslendingar erum ekki góð í því að mótmæla, látum yfir okkur ganga. Að sjálfsögðu ættum við að reyna að koma þessu á framfæri einsog mögulegt er, til að gera grein fyrir mikilvægi málsins og auðvelda íslandi í að byggja upp orðspor sitt. En því miður að þá eru spunameistarar ríkistjórnarinnar ekki betri en svo að þeir telja að þegja þunnu hljóði og vona að eitthvað gerist sé betra en að svara fullum hálsi?  Sama hvert valið verður að þá held ég að íslendingar eigi nóg inni og þegar þjóðir heims átta sig á hversu alvarleg og innantómi þessarar ákvörðunar Breta (lesist og skiljist sem Brown og Darling) og þá fáum við uppreisn æru.  
Nú er um að gera að fara að byggja upp ímynd Íslands, markaðsetja landið sem mest og játa mistök okkar að hafa ætlað að gleypa heiminn og ætlað að verða eitthvað fjármálaveldi. Við þurfum að vinna í því að fá jákvæðan stimpil á Ísland aftur, og vera þekkt fyrir eitthvað annað en bara fisk.  Allstaðar þar sem ég kem um að þá talar fólk um hvað íslendingar hafa takmarkað úti í heimi miðað við fólksfjölda.  Við eigum fleiri heimsþekkta listamenn heldur en margar stórþjóðir, við eigum einhverjar stærstu ósnertu náttúruauðlindir í vestrænum heimi (einkum þó Evrópu) og við ættum alveg að geta markaðsett Ísland sem náttúruparadís en ekki álversverkamenn og með innflutta pólverja að verka fist.  Reynum nú að finna okkar ost og úr einsog Svisslendingar eru þekktir fyrir, eða okkar verkfræði sem Þjóðverjar eru þekktir fyrir.

Kveðja úr suðrinu,

Himmi 

Check this out www.picasaweb.com/himmi78 

Wednesday, November 5, 2008

Perestroika

Meira af kosningunum í landi frjálshyggjunnar, en nú hefur fyrrverandi leiðtogi Sovétríkjanna sálugu boðað miklar breytingar í kjölfars þess að nú mun blökkumaður stýra Hvíta húsinu.

Perestroika er orðið sem hann notar, en Mikhail Gorbachev notaði það um byltinguna í Sovétríkjunum á áttunda áratug síðustu aldar sem hann leiddi sem í lauslegri þýðingu mætti þýða sem enduruppbyggingin (e. Rebuilding).

Perestroika markaði endalok Kalda Stríðsins (Cold War með L-i, ekki Cod War) og velta eflaust margir fyrir sér hvort að við munum sjá fyrir lok margra áratuga deilna undir botni Miðjarðarhafs með Múslima/Kristinn leiðtoga þar í fararbroddi.  Tíminn mun einn leiða það í ljós en ljóst er að margir binda miklar vonir við nýjan forseta Bandaríkjanna.

Hlutabréfasöfn (e. Porfolio) með bréfum sem talin eru líkleg til að dafna vel undir stjórn Obama hafa verið að rjúka upp síðan í Ágúst. En rétt einsog hlutabréf í olíufyrirtækjum voru líkleg til að dafna vel með forseta frá Texas þá sjá menn fram á tíma endurnýtanlegra orkuauðlinda, tækniframfarir og þjónustu við almenning dafna vel á komandi árum.

En er tími frjálshyggjunnar og viðskiptalegs frelsis úti? Margir spyrja sig þessu eflaust heima á fróni þessa dagana með viðskiptabankana þrjá núna í ríkiseigu og flest stórfyrirtæki að falla og liða undir lok, eða allaveganna búið að taka kjarnann af 10 verðmætustu eignum íslendinga úr kauphöllinni. Ríkasti maður heims, Microsoft nördinn Bill Gates, hefur spáð fyrir endalokum kapítalismann einsog hann hefur verið og ekki er laust við smá hræsni (e. hypocriticism) þegar hann segir að auðurinn er að færast á of fáar hendur. Hann og kona hans vinna þó að því að útdeila sínum auði og vini þeirra hjóna, 2 ríkasta manni heims, viðskiptamógulnum og verðbréfasjéní-inum Warren Buffet). En samanlagðar eignir þeirra eru nú notaðar til að bæta hag þeirra sem minna mega sín. Meira um framtíð kapítalismans seinna,

Nú þarf að fara að læra svo maður nái prófum og fái ríkisstyrkinn sinn til að leika sér í útlöndum,

Himmi

Check this out www.picasaweb.com/himmi78

Yes We Can!!!

Já langt síðan ég bloggaði síðast, en ég get það ennþá og get það einsog með allt annað sem ég (og aðrir) vill og ætla mér í lífinu.

En tilefnið er nú ansi ærið, einsog titillinn kannski gefur til kynna.

Forsetakosningarnar í Sameinuðu Bandalagsríkjunum (lesist og skiljist sem USA) eru nýafstaðnar og haldið þið að Bradley áhrif hafi ætlað að stoppa fyrsta blökkumanninn í sigri?

Nei heimurinn þarfnaðist breytinga og það er ekki laust við að framtíðin sé björt þrátt fyrir fall nokkurra banka, atvinnuleysi og aðrar hörmungar. Við getum komist yfir þær einsog allt annað, tímabundnir erfiðleikar gleymast í næsta góðæri og þá koma nýjir kallar fram drifnir áfram af græðginni einni saman,

Takk í dag, þangað til næst njóttu myndbandsins með sigurræðu Barack Hussein Obama,


Himmi

Check this out www.picasaweb.com/himmi78 

Wednesday, July 9, 2008

Skálað í bjór....

...já það er langt síðan ég settist fyrir framan tölvu síðast og hripaði niður misgáfuleg orð á netið svo ég ætla ekki að hafa þetta of langt núna.

En það var skálað í bjór eftir að maður kláraði prófin f tveim vikum síðan.....og síðan er ég búinn að vera misduglegur, eða segjum frekar að ég hafi verið að endurhlaða batteríin.

Luke félagi minn, kynnti mig fljótlega eftir komu mína hingað til Ástralíu f. Hahn bjórnum. Fjöldinn allur af tegundum er til og ef ég er ekki með Light (sem er nokkurskonar pilsner) að þá er það Super Dry sem verður fyrir valinu. Ekki hef ég séð Fosters sem á víst að vera frægasti bjór Ástrala hér....hann er kannski bara frægastur fyrir utan landsteinana. En það skemmtilega við að drekka Hahn er að þegar maður er búinn að skrúfa tappann af að þá bíður maður spenntur eftir að fá að vita hvaða visku tappinn býður uppá í þetta skiptið. En einhver snillingur hefur fattað það að unga menn þyrstir í þekkingu eins mikið og þá þyrstir í bjór og hvað er betra en að fá gagnslausar upplýsingar í verðlaun í hvert skipti sem maður fær sér bjór....og ef til vill fær maður sér þá fleiri bjóra fyrir vikið....en þannig á marketing að virka, auka söluna.

Fyrir mann einsog mig sem er mikill áhugamaður um gagnslausar upplýsingar að þá svínvirkar þessi markaðsherferð. Í kvöld þegar ég fékk mér bjórinn minn að þá leyndist ein sem fer svo sannarlega í safnið. En vissuð þið það að....."Buzz Aldrins mother´s maiden name was Moon"? Og af hverju er það svona merkilegt....jú af því allt síðan ég komst að því að Buzz nokkur Aldrin hefði verið svo heppinn að vera annar maðurinn til að stíga fæti á tunglið (e. Moon) að þá hef ég viljað afla mér meiri upplýsinga um hann. Allir vilja jú vita um þann sem var fyrstur....nema þú sért Hilmar Ingimundarson.

Takk fyrir í dag,

Himmi

"The second one is the first looser" unknown


Check this out www.picasaweb.com/himmi78

Sunday, June 8, 2008

2.137 bls og 2.445 A4 útprentanir = fyrsta önn búin



Já nú er fyrsta önnin búin og vika í próf. Heilmargt hefur nú gerst á þessum tíma, fjölskyldan búin að koma sér vel fyrir, barátta við sjúkraþjálfarasambandið í NSW, skottúr til Nýja Sjálands og margt fleira.

Búinn að lesa yfir 700 bls (22 kafla ) af rekstrarhagfræði + 2 hefti (Game Theory og Auctions), og aragrúa af verkefnum, 513 bls (eða 22 kafla af 26 í bókinni) af þjóðhagfræði og ætti að geta rétt þjóðarskútuna af á augabragði, farið yfir 13 kafla í fjármálum (þar sem ég fann það út að ef ég núvirði öll framtíðar launin mín að þá næ ég aldrei að break even kostnaðinn við framhaldsnámið) og annað eins í stefnumótun fyrirtækja á alþjóðavettvangi. Búinn að prenta út 3 risatré af glósum og aukalesefni, þeas yfir 2 LEITZ möppur.
Nú er bara um að gera að endalega reka endahnútinn í þetta og setja þetta allt saman, leggja það á minnið og tækla þessi próf svo ég geti farið í vetrarfrí.

Síðan tekur við einn vetraráfangi hjá mér, Terrorism in the Asia and Pacific Region. Já það er ekkert slegið við slöku hér suðurfrá, haldið áfram lærdómnum í fríinu sínu. Gæti stytt tímann hérna eitthvað og hvað ætti maður svo sem að gera af sér í 5 vikna fríi? Ekki hægt að surfa alla daga, eða klifra. Betan byrjar sennilega að vinna (þeas ef þetta ráð gefur loksins eftir og lætur hana fá starfsleyfið) strax eftir að ég klára prófin 24 júní.


Well ekkert næst fyrr en eftir próf, þar sem ég kem ekki til með að gera annað frá sólarupprás til sólseturs en að kúra yfir bókum,
kv.námsmaðurinn





Tuesday, June 3, 2008

Smoking of any substance prohibited!

Redfern kemur stundum fyrir í fréttum hérna í Sydney, en þar stoppar lestin mín þegar ég fer í og úr skólanum. Fréttirnar eru sjaldnast jákvæðar, maður stunginn, vandræðagangur á frumbyggjum og annað skemmtilegt. Ég sé fleiri öryggismenn á vakt þarna en á Central station, sem er næsta stöð og sú stærsta í Sydney. Kannski ástæða f. því. Ég var seint á ferð í gærkveldi á heimleið og sá að nokkrir höfðu gert sér varðeld til að ylja sér við ekki langt frá stöðinni, og ef þú ert ekki kunnur staðháttum að þá er þetta ekki langt frá miðbænum og helstu viðskipta og ferðamannastöðum bæjarins. Svo varðeldur ætti ekki að teljast algeng sjón eða?



En ástæðan fyrir því að ég er að skrifa núna um Redfern er að ég rakst á skilti á lestarstöðinni. Þar stendur að reykingar eru bannaðar og ekki bara reykingar, heldur reykingar af hvaða tagi sem eru, hvaða efni sem er það er að segja. Já þú mátt ekki reykja tóbak og hvað þá eitthvað annað. Gott og nauðsynlegt að taka það fram. Aldrei að vita nema einhver taki upp pípuna ef þetta er ekki skýrt.

kv.Himmi







Check this out www.picasaweb.com/himmi78

Wednesday, May 28, 2008

Útí Heim eða var það Geim?


Comfortably Numb! Já svona lýsti vísindamaðurinn Haraldur Páll Gunnlaugsson því þegar hann fylgdist með geimfarinu lenda á mars nýlega.

Enginn maður var um borð og fór ég þá að velta því f. mér af hverju enginn hefur lent á annarri plánetu eftir geimkapphlaupið mikla á tímum kalda stríðsins? Einsog flestir vita að þá voru það Bandaríkjamenn með Neil Armstrong og Buzz Aldrin í fararbroddi sem fyrstir afrekuðu það að lenda á tunglinu í júlí 1969. En svo í kjölfarið voru víst sex mannaðar ferðir þangað eða til ársins 1972, og svo 3 ómannaðar á vegum Rússa í kjölfarið. En af hverju ekki aftur?

Einhvern tímann hef ég tekið þátt í umræðum um hvort þetta hafi allt saman verið uppspuni, tekið upp í studio í Bandaríkjunum og haldið sem stóru leyndarmáli enn þann dag í dag.

Ég mun seint eða aldrei gleyma nafninu Buzz Aldrin, eftir að ég heyrði það í sjónvarpinu f. mörgum árum síðan að hann var annar maðurinn til að stíga á tunglið. Hef aldrei komist að því hver var þriðji maðurinn og þurfti að bíða í geimflauginni á sporbaug um tunglið? Aldrin var vel starfinu vaxin og lengi var möguleiki á því að hann stigi fyrstur á land (tungl) sem hann var mjög svo spenntur fyrir. En hann og Armstrong voru í þriðja hópnum sem var settur saman. Sumir vilja meina að breyting á Lunar Module (flauginni sem lenti) var orsök þess sem úr varð. Aðrir vilja meina að Armstrong hefði minna EGO og því hæfari til verksins, þeas að höndla alla athyglina.

Fyrstu orðin voru, "Houston, Tranquility Base here. The Eagle has landed", sem Armstrong lét hafa eftir sér, þó raunverulega hafi fyrstu orðin komið frá Aldrin, "Okey, Engine Stop".......eða var það Armstrong með Shutdown? Menn virðast geta rifist um allt.

Sagan segir mér að Aldrin hafi aldrei náð sér eftir að hafa komið heim, frægð hans féll alveg í skugga af félaga hans, og hafi hann lagst í drykkju og þunglyndi. Lesa má um það í sjálfsævisögu hans Return to Earth.

Já alltaf gaman að gera eitthvað fyrstur,

kv.Himmi