Tuesday, May 6, 2008

Ísland fyrir Íslendinga

Robert Aliber, Prófessor Emeritus í Alþjóðahagfræði og fjármálum, minna má það nú ekki vera. Kannski fara íslendingar að trúa því að uppbygging síðastliðinna ára hafi verið byggð á sandi. Jú mikið hefur verið rætt um það í erlendum blöðum, en alltaf koma heiðvirðir fjármálaspekúlantar íslendinga fram og lýsa því glatt yfir að svo sé ekki. Íbúðalánavextir bankans munu standa, við höfum nægt fjármagn til að halda vöxtunum svona lágum. Hversu lengi? LENGI var svarið. Ég held að sá einstaklingur hafi vart verið búinn að sleppa orðinu þegar vextir hjá því annars góða fyrirtæki hækkuðu, viðskiptavinum þeirra til mikilla armæðu. Hvað ætli hafi verið í bónusgreiðslur það árið?

Þegar ég vitna í að byggja á sandi að þá má taka eitt merkilegt dæmi úr viðskiptasögunni sem var byggt á sandi. ENRON. Þar voru klárir kallar að störfum, svo klárir að þeir gátu platað alla uppúr skónum og látið þá trúa því að allt léki í lyndi, svo vel meira að segja að fyrirtækið fór úr 500 stærstu í USA í eitt þeirra stærstu, og það einungis á 15 árum og var meira að segja eitt af 100 bestu fyrirtækjunum að vinna fyrir.....allt þar til það varð gjaldþrota og tók þar með allan lífeyrir starfsmannanna sem þar unnu. Já því miður. Fjármálastjórinn náði samt að komast undan rétt áður með vændiskonunni sinni, eða var það strippari? Ætli hann hafi vitað það að allt var að fara til fjandans, svona 6 vikum áður? En við skulum ekki vera svo svartsýnir að vilja líkja þessu saman, en skemmtilegt samt, sérstaklega í ljósi þess að í 6 ár í röð trúðu menn því að allt gengi vel, meira segja svo vel að það var kosið Most Innovative Company 6 ár í röð af FORTUNE. Þar voru jú klárir kallar í brúnni, sem héldu fundi sem einna helst minntu á ofsatrúarsamkomu, þar sem þeir töngluðust á því hvað vel gengi, mötuðu alla af þessari velgengni, sem jú virkaði í einhvern tíma. Enda mannskepnan svo góð í sér að hún vill bara trúa því góða, og vill helst ekkert aumt sér sjá. Þarna átti sér reyndar stað uppblásnar hagnaðartölur, helst til vafasamar bókhaldsvenjur og smá "dash" af svindli. Ég vill nú ekki trúa því að nokkuð slíkt eigi sér stað á hinu ylhýra. En gott samt að þeir reyni að halda íslendingum í trú um það að allt sé í góðu. Því um leið og við trúum því, eða vitum, að allt sé í molum að þá fyrst fer allt að hrynja. Svo ég vona að þeim takist að halda andlitinu, og sannfæra almenning um að allt sé í lagi og fari uppá við aftur fljótlega. Þeim tókst það í síðasta skipti, og síðasta skipti þar á undan og.....

Önnur vitleysan er síðan að ríkisstjórnin er fyllilega tilbúin að bakka þessi fyrirtæki upp, kannski væri það vitleysa að gera það ekki? En ef þú lítur á það frá sjónarhorni hins almenna íslendings, sem borgar í ríkissjóð með sköttum, að er það ekki frekar dapurlegt að sá hinn sami sé í viðskiptum við eitt af stærstu fyrirtækjum landsins, sem borgar hæstu laun landsins, mönnum sem eiga að vera svo klárir, að ekkert eigi að geta klikkað sem þeir snerta. Allt verður að gulli sem þeir gera, og há laun eru ekki nóg heldur þarf að borga þeim ríkulega bónusa til að minna þá á það líka, svo ekki sé minnst á kaupaukana sem eru jú að sjálfsögðu tryggðir þannig að þeir tapi nú ekki á þeim. Ég allaveganna fæ það útúr öllu þessu, að launin séu svo há því þeir séu svo klárir í því sem þeir eru að gera. Klárir kallar. Já og af því að þeir voru ekki búnir að byrgja bú sitt betur f. harðærið, sem ég skil ekki að komi neinum á óvart, að þá þarf ríkissjóðir og landsmenn allir að bakka þá upp. Ég hélt að við værum búin að borga þeim nóg í formi vaxta, vaxtavaxta, seðilgjald, færslugjald, innheimtugjald og hvað það nú heitir allt. Jú skiljanlegt, enda íslendingar flestir kyrfilega fastir inní vítahring þessar manna, og með allt sitt undir þeim. Vonum að það leynist ekki einn Nick Leeson í vinnu á íslandi eða Jerome Kerviel, sem séu búnir að spinna upp svo mikinn vef að þeir geti ekki losað sig úr honum, sem endar síðan með stóru falli eða bombu (eða var það BOBA einsog frægur boxari orðaði það).

Jú auðvitað verðum við að launa ríkulega okkar klárasta fólki, og sérstaklega þegar vel gengur, og vera samkeppnishæf við önnur lönd um besta fólkið. En öllu má nú ofgera, og það væri svo sem ekki slæmt að launa ríkulega ef þeir myndu standa sig á þeim tímum þegar það liggur mest við.

Logsugan er búin að lækka launin sín, gott mál. Enda formaðurinn ekki sáttur við bruðlið á þeim bæ.........samt er sá hinn sami búinn að vera í stjórnarsetu hjá þeim ágæta banka lengi, en loksins núna lætur hann í sér heyra?

Eins gott f. KBBanka...... eða var það Kaupþing, man aldrei hvað það var, enda skipt um nafn á tíumínutna fresti því svo miklir eru peningarnir, og ef ekki skipt um nafn að þá um lit eða logo eða...skiptur kannski ekki máli, kúnninn borgar.....að ekkert varð af sumrunanum við NIBC. Fjármálaeftirlitið kom þar sem bjargvættur, ekki veit ég hvar bankinn stæði nú ef af honum hefði orðið.

Lykilatriði undanfarinna ára í íslensku viðskiptalífi hefur verið að fara með offorsi, kaupa og kaupa. Síðan þegar allt er sett saman að þá fara menn og velta því fyrir sér hvernig eigi að reka batteríið. Skilja síðan ekkert í því að 1+1 eru ekki 3, og ekki einu sinni 2, heldur eitthvað þaðan af minna. Stækka var málið, sama hvað það kostaði. Að ganga vel rekstrarlega skipti engu máli, bara stækka í tölum. En nú fatta menn hvað þetta gengur úta allt saman, að reka búið sitt vel, svo það skili ríkulega, ekki bara að vera með stærsta typpið.

En hvaða máli skiptar það svo sem að nokkrir íslendingar verði gjaldþrota? Harðærið verður að bitna á einhverjum. Best að það bitni á þeim sem enginn tekur eftir.

Gullsetning ársins á ekki að vera GASGAS, heldur skera niður kostnað og hagræða. Vá hvað þetta eru klárir kallar að fatta það loksins núna þegar í harðbakkann slær, var í lagi að eyða í vitleysu þegar allt lék í lyndi? Af hverju ætli það sé ekki atburðadeild hjá Íslandsbanka, eða var það Glitni, lengur? Jú skera niður og hagræða, það voru síðustu orð Hr. Ármannssonar áður en hann tók staf sinn og hatt (sem var reyndar sennilega það snjallasta sem hann gerði í starfi, að hætta á réttum tíma). Ég átti í samræðum við einn af framtíðarvonum íslendinga í fjármálalífi f. nokkrum mánuðum, þar kom hann inná sama punkt þegar ég spurði hvað í ósköpunum menn gera þegar engir peningar eru? Já hugsaði ég, sem sagt þegar illa gengur að þá þarf maður að hugsa um kostnað versus tekjur, en þegar vel gengur að þá flýgur maður á Saga Class, og lætur sig dreyma um að góðærið eigi eftir að endast. Jú lykilsetningin er að enginn tapar, það er bara hægt að græða í viðskiptum.....því gleymi ég seint, eða aldrei, sem ég fékk líka að heyra einu sinni.

Fyndið að kjarni þeirra sem fylla þessi nýju störf á Íslandi eru af CocoPuffs kynslóðinni, rétt fyrir eða eftir. Þau ættu þá að hafa verið á unglingsaldri eða í menntaskóla þegar myndin American Psyco sló í gegn. En hún var einmitt um uppgang ungra fjármálamanna á Wall Street og má segja að þetta sé átylla eða hálfgert grín á kostnað þessara manna. Hvernig gert er að því hvernig nafnspjald viðkomandi var með, eða þá hvernig silfuröskju hann geymdi nafnspjöldin sín í? Kaninn er náttúrlega búinn að vera lengur að þessu en við, og því ekki skrýtið að hann sé búinn að sjá spaugilegu hliðarnar á þessu öllu langt á undan okkur.

Þar sem ég sit núna og skrifa þetta, andfætis við flesta íslendinga, að þá er nú ástandið þar ekkert mikið betra. Bankarnir 4 skipa stærstan sess á hlutabréfamarkaðnum hér, eiga stærstan hluta í hinum fyrirtækjunum og efast ég stórlega um að ástandið sé eitthvað betra hér hvað það varðar. Það er jú reyndar ennþá 20 stiga hiti á daginn þó það sé komið langt inná haustið, við erum alltaf með ströndina hér rétt hjá og flestir nokkuð ánægðir með lífið og tilveruna. Efnahagskrísan hefur áhrif hér einsog annarsstaðar, verð hækkar lítilega, aðalega þó á bensíni, íbúðaverð virðist bara vera á leið upp, og leigumarkaðurinn er að springa.

En það er ágætt að það kom einhver kall fram og tjáði sig loksins. Annað hvort eru þeir svona HEIMSKIR eða GRÁÐUGIR nú eða bara bæði????? Nú kemur það allt í ljós, þeir eru jú svo klárir, skil ekki hvernig Róbert fékk það út að þeir væru heimskir, ekki strákarnir okkar. En gráðugir eru þeir.

kv, einn sem skilur ekkert í þessu

1 comment:

Freon said...

úfff, langur lestur en alger B.O.B.A. Fyndið hvað hægt er að ljúga að okkkur í langan tíma og þótt sannleikiurinn blasi við okkur þá erum við samt eins og "the deer in the headlights"