Wednesday, April 9, 2008

Shark Attack!!!


Sextán ára strákur lést í gær eftir hákarlaárás hér í Ástralíu. Er þetta fyrsta dauðsfallið í Ástralíu síðan 7 Janúar 2006, og fyrsta í New South Wales síðan 1993. Reyndar er búið að vera eitthvað um hákarlaárásir undanfarið ár, en bara "minniháttar". En þetta var nú soldið langt frá okkur hér í Sydney, um 300 km norður af Sydney, eða í Ballina við North Wall at Lighthouse Beach.


Fyrir fjórum mánuðum síðan voru skólastelpur á svamli og þurftu að leita skjóls á strönduðu skipi meðan hákarl hringsólaði í kringum þær í Byron Bay, ekki langt frá þar sem dauðsfallið átti sér stað í gær. Á sama stað, Byron Bay, var kona á "surf ski" (einhverskonar sjókayak) ásamt manninum sínum þegar 2,5 metra langur hvíthákarl beit hluta af bátnum hennar og hún féll útbyrðis. Reynsla hennar bjargaði henni en hún náði að bjarga sér með því að beygja hákarlinum frá með árinni. Þriðja febrúar í fyrra slapp einn maður undan hákarlaárás svipaðri þeirri og átti sér stað í gær og á sömu slóðum (úff tölfræðin ekki alveg að styðja þennan stað til að fara að leika sér).


En fyrir þá sem hafa gaman af tölfræði að þá voru 12 hákarlaárásir í Ástralíu árið 2007 (samkvæmt Shark Attack File frá the Florida Museum of Natural History in the US), 6 árið 2006 og 10 árið 2005 og 13 árið 2004. John West, frá Tarongo Zoo´s, setti saman the Australina shak Attack File árið 1984, og samkvæmt henni eru meiri líkur á að deyja á leiðinni á ströndina en að vera étinn af hákarli. Ef skoðuð eru dauðsföllin síðastliðin, 10, 20, 50 eða 100 ár þá eru þau 1,2 dauðsföll á ári.


En dauðsfallíð í gær setur New South Wales (NSW) efst á lista síðan skráning hófst f. um 200 árum með 73 dauðsföll af 192, Queensland kemur næst með 72, svo South Australia með 19 og West Australia með 13. En samkvæmt Herra West, að þá hefur NSW verið "öruggasta" fylkið í Ástralíu undanfarin 50 ár. Síðan 1957 hefur Queensland verið með 22 af 57 dauðsföllum og toppar listann yfir það tímabil, South Australia næst með 16, Western Australia með 7, NSW með 6, Tasmania með 4 og Victoria með 2.

Yfir lönd í heiminum að þá er Ástralíu númer 4 hvað varðar hákarlaárásir, segir Mr West. Vesturströnd bandaríkjanna er með mun fleiri dauðsföll og meira að segja austurströnd Bandaríkjanna er með fleiri árásir (ekki tekið fram hvort dauðsföllin eru fleir eða færri).


Já þannig að maður valdi nú ekki illa, Ástralía er nú frekar örugg, og þá er NSW einn öruggasti staðurinn í Ástralíu til að vera á og síðstu dauðsföll í NSW hafa verið einhversstaða langt frá Sydney.


Baráttukveðjur,


Himmi


PS: ef þú vilt fá þetta staðfest að þá er það hér http://www.news.com.au/story/0,23599,23506715-1702,00.html


2 comments:

Hilmar Ingimundarson said...

Wow.....var að horfa á fréttir og þar var að sjálfsögðu minnst á hákarlaátið í gær. Viðtal við foreldrana og þar segir pabbinn, "he knew about the danger, he had encountered sharks before. I have even been with him in the waters and seen sharks swimming beneath us"

Freon said...

Allt í lagi! Þú þarft ekkert að réttlæta áhættuákvarðanatökurnar, er það nokkuð?
Þær eru öðruvísi hérna, hrapaði einn til bana í WI4 leið hérna um helgina...féll 60m eftir krúxinn!
hilsen frá Klettafjöllunum