Tuesday, April 8, 2008

Alltaf að græða?

Já það virðast allir vera að keppast við það í lífsgæðakapphlaupinu.

Á sunnudaginn græddi ég einn klukkutíma. Já það voru 25 klukkustundi í þeim sólarhring hjá mér. Fyrsta skipti sem ég upplifi það. Ég fór að sofa klukkan 23, vaknaði 9 tímum seinna sem ég taldi vera klukkan 8 um morguninn, en viti menn þá var klukkan bara 7. Ég reyndar uppgvötaði það ekki fyllilega f. en seinna um daginn, því klukkan á heimilinu (þessi á örbylgjuofninum) var ennþá stillt á gamla tímann. Ég eyddi öllum sunnudeginum í lærdóm, og eftir fyrstu törnina að þegar ég fer fram, sem ég taldi vera klukkan 13 að þá var hún bara 12. Frábært, þetta er sennilega einn mesti gróði sem ég hef upplifað. En hann er einungis til skamms tíma, þeas afturkræfur. Því eftir um hálft ár að þá gengur þetta til baka einsog lög gera ráð f. og gróðinn jafnast út. En það er víst þannig að klukkan 3, um miðja nótt þegar við sváfum, að þá gerðist það skrýtna að klukkan færðist til baka um klukkutíma, til 2.

Snilld, en held samt að færa tímann sé vitleysa. Við íslendingar erum langsamlega best og skynsömust. Við erum ekkert að hrófla við tímanum, tökum bara dagsbirtunni einsog hún er á þeim tíma sem hún er. Held að það sé of mikill kostnaður og vesen við að færa allar klukkur til og frá tvisvar á ári.

En ekki meir um það í bili, þetta var allaveganna ánægjulegt að upplifa þetta svona,

kv. frá (GMT +10) Canberra, Melbourne Sydney tímabeltinu ;)

No comments: