Thursday, April 24, 2008

15 ára met slegið!!!


Já svo virðist sem veðrið elti mann hvert sem maður fer. Nú er 15 ára met slegið hér í Sydney, með 11 rigningadögum í röð. Einsog sagði í laginu, "always take the weather with you, everywhere you go, always take the weather with you". Já það er nú reyndar eitthvað sem ég var að reyna að forðast og var frekar að hugsa um sól og sumaryl þegar ég valdi Sydney sem íverustað. En einsog Luke sagði að þá boðar þetta gott f. veturinn hérna, þannig að vonandi nær maður einhverju rennsli þá. En þetta á sér allt saman víst eðlilegar skýringar. El Nino er búinn að ráða ríkjum í einhver ár og núna er það systir hans, La Nina sem ræður ríkjum. En þessir tvær hafstraumar ráða ríkjum varðandi veðurfar um allan heim. La Nina veldur kólandi veðurfari en El Nino heitari. Spurning hvort maður vill El Nino eða systir hans La Nina.
http://www.visir.is/article/200880404009
Búið að vera nóg að gera undanfarið, fengum heimsókn í viku, Sigurþór og María voru hér í rigningunni með okkur, þannig að ég hef ekki verið duglegur að blogga undanfarið. Nú er bara að spýta í lófana og reyna að vera duglegri. Reyndar hefur líka verið nóg að gera í skólanum, við hverju bjóst maður svo sem, væri varla framhaldsnám ef það væri eitthvað gefins. Búin að taka nokkur próf undanfarið og gengið vel í sumu og ekki eins vel í öðrum. Þannig að nú er að spýta í lófana, 7 vikur í lokaprófin.
Þangað til næst,
Himmi



No comments: