Já nú styttist í að maður fari að ráðum Þorgríms Þráinssonar og fari að pissa sitjandi. Það virðist sem síðustu vígi karlpeningsins séu fallin. Ef þú hefur ekki heyrt það að þá er það víst staðfest, karlmaður er óléttur. Já þetta var í Opruh, og fréttatímarnir hérna í Ástralíu uppfullir af þessu. Sá fréttina með sónarnum sem hann fór í. Kannski ætti maður ekki að tala um að karlmaður sé óléttur, þar sem þetta er víst "fyrrverandi" kona, fyrirsæta frá Hawaii. Já fyrirsæta þessi gekkst undir kynskiptiaðgerð en ákvað að skilja legið og annað nauðsynlegt eftir til að geta orðið ólétt í framtíðinni. Og viti menn, nú er hann ("hún") gift konu og þau eru að fara eignast barn saman sem hann ber undir belti. Já fyndið allt saman og skrýtið að skrifa um þetta. Svo finnst honum fyndið að það sé erfitt að finna karlmannleg föt sem passa á ólétta?
En já, ég get svo sem viðurkennt það að ég hef prófað það 2-3 að pissa sitjandi. Finn svo sem ekki mikinn mun, það er sem sagt ekki betra en að standa. En það eru víst tvær góðar ástæður f. því að við karlmenn eigum að pissa sitjandi (á klósetti, ekki úti í guðsgrænni náttúrunni). Rannsóknir hafa sýnt að það eru minni líkur á því að við þjáumst af blöðruhálsbólgu (minnir það, eða það var einhver sjúkdómur allaveganna sem tengist því að erfitt er að pissa), pissublaðran á víst að klárast betur þegar við sitjum. Svo er hin ástæðan af hreinlætisástæðum, þeas við hættum að pissa út fyrir, nánast ógerlegt að hitta ekki í klósettið sitjandi. Þannig að allt umhverfi postulínsins ætti að vera þrifalegra. Við vitum það allir að það er engum nema okkur að kenna þessir gulu blettir og sóðaskapur í kringum klósettið, engin kona sem ég þekki pissar útfyrir og er ábyrg f. svona sóðaskap sem við erum þekktir fyrir. Talandi um salerni að þá er skemmtilegt að fara á almenningsalerni hérna í Ástralíu, ég get reyndar bara talað um hvernig karlasalernin eru. Svo mikill fjöldi sækir almenningssalerni að þau verða oft fljótt viðbjóðsleg. Karlasalernin eru þannig að þú pissar í þar til gert "stand up" salerni (ekki þetta týpíska sem maður er með heima hjá sér), vanalega einhver renna sem allt þetta gula safnast saman í. Ekki er sírennsli i þessum salernum, þar sem mikill vatnsskortur er í Ástralíu og þeir reyna að spara vatnið sem mest. Stöng er til að tosa í þegar maður hefur lokið sér af, og þeir sem ekki vita það að þá eru þetta fjöldasalerni, ekkert einn í einu, heldur margir tillar í röð. Flestir hafa ekki f. því að tosa í stöngina til að skola niður, enda margir í röð eða að pissa. Því safnast upp megn lykt af hlandi sem engum finnst góð get ég ímyndað mér, allaveganna ekki mér. Síðan eru þau þannig úr garði gerð þessi klósett að þegar bunan vellur á þeim að þá sprautast í allar áttir og safnast upp allt í kringum svæðið sem maður stendur á. 500 manns p. klst x 10 tímar á dag x Ymargir ml af hlandi, gerir þetta að frekar óvistvænum stað. Síðast en ekki síst að þá stendur maður þarna í sandölum, því svo heitt er í veðri að ekki er maður í sokkum og skóm, og finnur hvernig sprautast í allar áttir.
Takk fyrir í dag,
Himmi

No comments:
Post a Comment