Saturday, March 29, 2008

Fórum í Bláfjöll í dag!!



Já við skelltum okkur uppí Blue Mountains í dag að klifra. Lögðum af stað uppúr 9 og vorum komin á svæðið (Dam Cliffs, eitt af fjölmörgum svæðum í Blue Mountains) um 2 tímum seinna. Þar hittum við fyrir par frá Austurríki sem var að koma þarna í 4 skipti að klifra. Eftir að við höfðum snætt heimatilbúna nestið okkar, sem við geymdum í nýja Rip Curl kæliboxinu að þá héldum við niður stíginn að klifurleiðunum.


Það voru um 10 manns að klifra þarna þegar við komum. Austurríska parið, tvær Asískar frá frönskumælandi Kanada og 2 heimamenn með þeim og síðan 4 heimamenn og þar af einn dvergur. Já fyrsti dvergurinn sem ég sé og veit af klifrandi. Var hann ekkert að tvínóna við hlutina, var þrusuöflugur og leiddi hverja leiðina á fætur annarri. Tómas var ekki alveg að dansa með okkur til að byrja með, vildi bara fara í bílinn aftur strax og virtist ekkert upp með sér að vera komin á klifursvæðið, umlukið frumskógi. En það reið af fljótt og var hann farinn að keyra bílinn sinn og farinn að hlaupa um í skóginum áður en við vissum af. Við uppgvötuðum að við höfðum gleymt að kaupa augu í boltana og því gátum við ekki klifrað allar leiðirnar sem eru þarna í boði. En hérna Down Under að þá tíðkast það víst að vera með boltana standandi út og maður þarf sjálfur að koma með augu sem maður smellir beint á áður en maður klippir í. Vorum við búin að setja markið á að taka eina 10 sem upphitun en urðum frá að hverfa þegar við sáum að það voru engin augu til að klippa í. Þannig að við tókum fyrstu "boltuðu" leiðina sem við sáum, gráða 19 (jebb, ástralskar gráður), Shadow the Goat. Skemmtileg leið!! Eftir smá byrjunarerfiðleika með að vera með einn 2,5 árs með í för (lesist og skiljist sem truflun meðan verið er að klifra, toga í línuna, hlaupa í burtu osfrv sem getur valdið því að sá sem er að klifra þarf að hanga lengur en ella á sama stað meðan verið er að skikka málin niðri), að þá færðum við okkur í sólina þar sem leiðirnar voru aðeins brattari, yfirhangandi svo ég fari með rétt mál. Klifruðum þar Stormin Norman, gr 18 og Tale of Two Cities 18 gr. Leiðinar voru skemmtilegar, rifu vel í skinnið og buðu uppá ýmis skondin tök. Tómas var duglegur að leika sér með bílinn á meðan, henda honum inní runna og láta pabba sækja, þangað til pabbi sagði hingað og ekki lengra. Ef þú vilt henda honum inní runna og fá hann aftur að þá nærðu í hann sjálfur sonur sæll. Ekki var hann vitund hræddur við að skella sér inní kjarrið og ná í Bubba bílinn sinn en hætti þessari iðju fljótt eftir þetta, enda ekkert gaman ef pabbi tekur ekki þátt. Síðan þegar mamman var á fullu að tryggja pabba að þá fór minn bara að klifra líka, bara á smásteinum þarna og áður en illa fór komu Kanadísku stelpurnar honum til hjálpar. Síðan var heldur farið að síga í hjá litla manninum, og þegar mamma lagði hann á línupokann að þá var hann allur á innan við mínútu. Nú loksins þegar friður var komin og ró til að klifra að þá var allur máttur úr okkur, eða segjum skinnið var orðið svo vel tætt að það var ekki sársaukalaust að klifra lengur. Að endingu fengum við að toppa hjá Kanadísku stelpunum (skiptumst á línu við þær) Lonely Thursday gr19 og fljótlega eftir það kölluðum við þetta dag og héldum uppí bíl, nestuðumst og keyrðum síðan heim.


Gaman er að geta þess að svæðið er nefnt eftir virkjun (smávaxinni) sem er þarna nærri og er hægt að baða sig í lóninu þar en varað er við fullt af WATER DRAGONS (sem ég veit ekki hvað er) sem eru víst ekki sérlega feimnir við Homo Sapiens, sem og hinn sjaldséða RED BELLIED BLACK SNAKE sem er sem betur fer ívið feimnari.


Heim var komið um hálf sjö eftur um 2 tíma akstur, galdrað fram 3 pítur og hent inn hetjumyndum frá fyrsta útiklifrinu hérna í Ástralíu. Bloggað og næst á dagskrá hjá húsbóndanum er að skella einkasyninum í háttinn (eftir að búið er að reyna að fá hann til að pissa í klóssettið) og fá sér síðan kaldan bjór yfir imbanum áður en maður legst útaf og hleður batteríin f. sunnudagslærdóminn.


Takk í dag,





Himmi





ps; myndirnar má finna hér, http://picasaweb.google.com/himmi78/KlifurBlueMountains290308

No comments: