Friday, March 28, 2008

hmm...

Hvernig byrjar maður annað bloggið sitt? Well hef ekki verið duglegur síðan ég post-aði fyrstu færslunni þannig að ég hef nú frá ansi mörgu að segja.

Fór út að hlaupa á miðvikudaginn. Vaknaði snemma og var frekar borubrattur og var því kominn út að hlaupa klukkan 8. Botanical Park er hérna rétt hjá og liggja hlaupaleiðirnar okkar Elísabetar þar í gegn. Ekki ýkja merkilegt en litla hjartað í mér sló ansi hratt við hlaupin og jókst hjartslátturinn þegar kóngulónum fór að fjölga. Svo slæmt var það að ég þurfti að stoppa á einum stað og bíða eftir aldraða kínverjanum sem ég tók framúr og láta hann fara á undan í gegnum kraðakið, því hræddur var ég svo við að festast í köngulóarvef, svo ekki sé nú minnst á stærðina á þessum köngulóm sem ég vildi nú alls ekki fá á mig. Þær eru með þeim stærstu sem ég hef séð, en eru nú samt ekki ýkja feitar (jafn stórar og Tarantúlur en bara ekki eins feitar). Síðast þegar ég glímdi við svona ófreskjur var þegar ég og Jón Heiðar vorum með hjartað í buxunum hlaupandi í gegnum skóga Nepal að fara að bjarga honum vini okkar Davíð....en f. snarræði náði ég að koma okkur frá því að arka inní frumskóg köngulóarvefja og einsog þið vitið með kringlótta (e. SPIRAL WEBS), að þá er köngulóin í miðjum vefnum að bíða eftir bráðinni (lærði að það eru tvennskonar tegundir af köngulóarvefum þegar ég tók TOEFL enskuprófið mitt síðasta sumar, fræðandi). Já það er óhætt að segja að litli íslendingurinn hræðist köngulær. Kannski er það eftir að hafa séð Aracnaphobia um árið? Hafði ég farið margoft þarna í gegn og ekki stressað mig of mikið á þessu áður, en núna voru þeim búið að fjölga og orðnar svo bíræfnar að láta vefinn ná alltaf lengra og lengra niður. En ég slapp lifandi frá þessu, þurfti að beygja mig óþarflega þegar ég hljóp í gegnum þrönga stíga og hef ekki farið út að hlaupa síðan.....en hef samt verið duglegur í gyminu og sundinu sem eru í húsinu.


Vaknaði líka snemma á Fimmtudaginn, en þá var það af því píparinn sem átti að koma að laga sírennslið á gestaklósttinu var mættur til að laga það. Já hann var mættur á slaginu 07:15 am (sem þýðir víst eftir miðnætti eða snemma um morgun.) Síðan fékk Elísabet úr prófinu sínu, IELTS enskuprófinu, á fimmtudag. Það var gleðidagur því hún náði 7 (7 af 9 mögulegum) sem var lágmarkið til að fá REGISTRATION sem sjúkraþjálfari hér og getað byrjað að vinna. Nú bíðum við bara eftir svari frá þeim, en næsti fundur er víst ekki f. en í maí og því langt þangað til. En hún byrjar að vinna eitthvað í næstu viku og því ætti að komast betra ról á okkur.

Eftir miklar vangaveltur um fræðilegar pælingar um haglegan rekstur fyrirtækja í morgun, föstudag, að þá skelltum við okkur í klifur-gym-ið okkar (innanhúsklifuraðstöðuna). Hún er bara í 20-30 mín akstri héðan, og ku vera sú stærsta í Ástralíu. Fín æfing þar en við stefnum á okkar fyrsta almennilega utanhúss klifur á morgun. Meir um það þá.....

Well nú er ég loksins kominn með tvær færslu á viku, betri byrjun en síðast hjá mér. Vonandi næ ég að halda þessu út,

En svo má lesa meira um hag fjölskyldunnar hér, http://www.elisabetoghilmar.blogspot.com/ sem við reynum að halda úti saman. Næst þá reyni ég að koma með smá meiri þankagang um málefni líðandi stundar, vandamál þriðja heimsins, svarið við hvernig við höldum frið í heiminum og hvernig við öll getum lifað í sátt og samlyndi....en þangað til....þá verðið þið bara að trúa á hið góða í náunganum.

....takk f. í dag,

Himmi

PS: þetta er síðan lag dagsins, jú ég bý víst down under,

http://video.aol.com/video-detail/men-at-work-down-under/3925172618

Enjoy.... :)

No comments: