Sunday, June 8, 2008

2.137 bls og 2.445 A4 útprentanir = fyrsta önn búin



Já nú er fyrsta önnin búin og vika í próf. Heilmargt hefur nú gerst á þessum tíma, fjölskyldan búin að koma sér vel fyrir, barátta við sjúkraþjálfarasambandið í NSW, skottúr til Nýja Sjálands og margt fleira.

Búinn að lesa yfir 700 bls (22 kafla ) af rekstrarhagfræði + 2 hefti (Game Theory og Auctions), og aragrúa af verkefnum, 513 bls (eða 22 kafla af 26 í bókinni) af þjóðhagfræði og ætti að geta rétt þjóðarskútuna af á augabragði, farið yfir 13 kafla í fjármálum (þar sem ég fann það út að ef ég núvirði öll framtíðar launin mín að þá næ ég aldrei að break even kostnaðinn við framhaldsnámið) og annað eins í stefnumótun fyrirtækja á alþjóðavettvangi. Búinn að prenta út 3 risatré af glósum og aukalesefni, þeas yfir 2 LEITZ möppur.
Nú er bara um að gera að endalega reka endahnútinn í þetta og setja þetta allt saman, leggja það á minnið og tækla þessi próf svo ég geti farið í vetrarfrí.

Síðan tekur við einn vetraráfangi hjá mér, Terrorism in the Asia and Pacific Region. Já það er ekkert slegið við slöku hér suðurfrá, haldið áfram lærdómnum í fríinu sínu. Gæti stytt tímann hérna eitthvað og hvað ætti maður svo sem að gera af sér í 5 vikna fríi? Ekki hægt að surfa alla daga, eða klifra. Betan byrjar sennilega að vinna (þeas ef þetta ráð gefur loksins eftir og lætur hana fá starfsleyfið) strax eftir að ég klára prófin 24 júní.


Well ekkert næst fyrr en eftir próf, þar sem ég kem ekki til með að gera annað frá sólarupprás til sólseturs en að kúra yfir bókum,
kv.námsmaðurinn





4 comments:

Anonymous said...

Va list mer a thig! Ja mastersnam er enginn leikur, tar get sko alveg verid sammala ther. Er einmitt a fullu nuna ad undirbua mig fyrir radstefnuni i Vermont, ekki laust vid ad stresshnuturinn fari staekkandi:/ Heyrumst,
kvedja ur Gosford

Freon said...

Gangi þér vel í prófunum Gimp! Gaman að sjá að fleiri en ég skrifa comment hjá þér...var farinn að halda að þú ættir enga vini...bara uppáþrengjandi frænda ;)

Anonymous said...

Gangi þér vel í prófunum!
Þetta hefst allt á endanum. Bara þrauka í gegnum þessar vikur...

Same old same old frá Íslandi.
Stefni á að fara þumalinn í byrjun júlí.

Anonymous said...

Gangi þér vel í prófunum!
Þetta hefst allt á endanum. Bara þrauka í gegnum þessar vikur...

Same old same old frá Íslandi.
Stefni á að fara þumalinn í byrjun júlí.