Tuesday, June 3, 2008

Smoking of any substance prohibited!

Redfern kemur stundum fyrir í fréttum hérna í Sydney, en þar stoppar lestin mín þegar ég fer í og úr skólanum. Fréttirnar eru sjaldnast jákvæðar, maður stunginn, vandræðagangur á frumbyggjum og annað skemmtilegt. Ég sé fleiri öryggismenn á vakt þarna en á Central station, sem er næsta stöð og sú stærsta í Sydney. Kannski ástæða f. því. Ég var seint á ferð í gærkveldi á heimleið og sá að nokkrir höfðu gert sér varðeld til að ylja sér við ekki langt frá stöðinni, og ef þú ert ekki kunnur staðháttum að þá er þetta ekki langt frá miðbænum og helstu viðskipta og ferðamannastöðum bæjarins. Svo varðeldur ætti ekki að teljast algeng sjón eða?



En ástæðan fyrir því að ég er að skrifa núna um Redfern er að ég rakst á skilti á lestarstöðinni. Þar stendur að reykingar eru bannaðar og ekki bara reykingar, heldur reykingar af hvaða tagi sem eru, hvaða efni sem er það er að segja. Já þú mátt ekki reykja tóbak og hvað þá eitthvað annað. Gott og nauðsynlegt að taka það fram. Aldrei að vita nema einhver taki upp pípuna ef þetta er ekki skýrt.

kv.Himmi







Check this out www.picasaweb.com/himmi78

No comments: