Wednesday, May 21, 2008

235 wats í 30 mínútur

Fór á æfingu áðan í líkamsræktarstöðinni sem er hérna í complexinu sem við leigjum í. Ágætis stöð þó hún sé ekki stór, hjól+hlaupabretti+cross trainer og svo helstu lyftingartólin að ógleymdir 25 metra upphitaðri innilauginni. Þar sem hjólamenningin er svo rík hér í Ástralíu að þá komst maður ekki hjá því að smitast. En gaman er að geta þess að í fyrra seldust fleiri hjól í Ástralíu en bílar. En þar sem Trek Racerinn er ekki ennþá kominn í hús að þá verð ég ennþá að halda mig innandyra á hjólinu þar. Þó hjólið sé gott að þá leitar samt hugurinn út og er ég sannfærður um að Trek-ið verður orðið mitt eftir veturinn (já það er víst vetur á suðurhveli jarðar núna) .

Búinn að vera að hjóla í mismunandi "progrömmum" undanfarið en ákvað að nú væri kominn tími á að æfa eftir vöttum (e. Watts). Stillti hjólið á 235 watts, og 30 mínútur sem ég rétt marðiþ Í Ipod-inu hljómuðu lög einsog Prologue, Vitamin og Titanium eftir rafsnillingana í Kraftwerk af plötunni Tour De France Soundtrack til að stytta mér þjáninguna. Náði að fara tæpa 20 kílómetra á þeim tíma, með meðal RPM (rounds per minute) 95 og einhverjar kaloríur fuku um leið. En af því ég hafði hugsað mér að hjóla lengur en í 30 mínútur að þá fannst mér ég hafa verið að svindla og bætti því við 5 mínútum á hlaupabrettinu á 12 km hraða , og líka til að sjá hvernig lærin myndu hafa það eftir þolraunina á hjólinu.

Það þýðir víst lítið að vera að miða sig við meðaljóninn og því googlaði ég hvað Lance Armstrong er að gera. En hann einsog flestir ættu að vita vann Tour de France 7 ár í röð (99-05) á ótrúlegan hátt eftir að hafa sigrað krabbamein 1996. Jæja nóg um það, en menn af hans kalíberi eru að hjóla 6,8 watts per kíló í 20 mínútur. Á mínu máli myndi það þýða 510 watts í 20 mínútur, þannig að ég á víst nóg í land með að ná honum, og þeim örfáu sem eru við þetta mark. Enda þá væri ég sennilega sveittur á óþægilegum hnakki í nokkrar vikur í Frakklandi ár hvert að bítast um að vera í gulum bol og hampa síðan Tour de France titlinum, frekar en að vera sveittur yfir skólabókum.

En vonandi nær maður að læra að nýta sér vísindin til að æfa meira, púlsmælir, watts og hvað þetta nú allt er......ég sem á í stökustu vandræðum með að læra hvenær ég á að borða kolvetni og hvenær prótein.

Þangað til næst,

Himmi

Check this out www.picasaweb.com/himmi78

No comments: