En í dag fórum við og lékum túrhesta, og gengum um Circular Quay og Sydney Harbour í sólinni. Já það er víst vetur hérna en stuttbuxur og langermabolur voru of mikið í dag, en þegar sólin sest að þá kólnar, og erum við þá að tala um kannski 12-15 gráður. Svona gott sumarkvöld heima, já maður þarf að skella peysu yfir axlirnar til að fá ekki kul þegar kvölda líður. En Circular Quay er sem sagt þekktast f. skjaldbökurnar sem virðast vera að "eðla" sig, skiljist sem að hafa kynmök. Já frægir arkitektar frá Danmörku, Jørn Utzon and Ove Arup & Partners, hönnuðu víst hús, í Expressionist modern stíl, hér um miðja síðustu öld sem er hvað þekktasta kennileyti Ástralíu og Sydney þá í leiðinni. Óperuhúsið í Sydney sem sagt. Skráð sem UNESCO World Heritage site síðan 28 Júní 2007, minna en ári síðan!! Sennilega ein af frægari byggingum heims, staðsett á Bennelong Point í höfninni í Sydney. Óperuhúsið er 183 metra hátt og 120 metra breitt. Ekki tókum við nú allan túrista pakkann, en það ku víst vera mjög vinsælt að klifra uppá annað stolt Sydneybúa, Harbour Bridge og taka myndir þaðan. Já maður er víst aðeins bundnari þegar maður er með einn 2 og 1/2 árs, kannski næst. En Harbour bridge á sér víst skemmtilega sögu sem ég nenni ekki að rekja, en ef þú kíkir hingað í heimsókn að þá skal ég kannski stikla á helstu atriðinum einsog að hún hrundi rétt áður en síðasti bitinn átti að vera festur í miklu roki.
Það var nú kominn tími á þetta, maður er nú búinn að vera hérna í rúma 3 mánuði og bara séð það úr bíl af Harbour Bridge.
kv, Himmi

Hérna má sjá Panorama tekið á símann minn af Harbour Bridge og the Opera House.

1 comment:
Skjaldbökur að eðala sig! Jamm, verð að segja að ég hef aldrei séð það þannig áður en á líklega eftir að muna eftir því núna í hvert skipti sem ég sé Óperuhúsið!!! Takk
Post a Comment