Á morgun er laugardagur, og þá er nammidagur. Já maður er byrjaður aftur í átaki með að minnka nammi og annan óþverra. Það er nú hægara sagt en gert f. svona sælkera einsog mig, en fyrstu tvo mánuðina hérna úti var ég nokkuð harður og ekkert kex, gos eða nammi nema um helgar. Síðan fengum við heimsókn og þá sleppti maður aðeins á beislinu, og það tók tíma að koma sér aftur í gírinn. Núna erum við skötuhjúin búin að vera samheldin í átakinu þessa vikuna, og það hefur ekki verið auðvelt. Það eru ófá augnablikin þegar maður hefur nú hugsað um hversu gott það væri að fá sér svo sem einn bita af súkkulaði eða kex. En þetta kemst í vana og verður einfaldara. Annars hef ég ekkert drukkið af gosi síðan ég kom út, löngunin hefur ekki verið mikil þannig að það var einfalt að hætta því.
En það má ekki alveg tapa sér og hætta öllu sem er gott og skemmtilegt í lífinu, bara að reyna að finna hinn gullna meðalveg í því einsog öllu öðru. En einsog sagði áður að þá er laugardagur á morgun og ætli við bökum ekki köku fjölskyldan í tilefni dagsins og kannski skellum í okkur einu súkkulaðistykki.
kv.Himmi
Check this out www.picasaweb.com/himmi78
Friday, May 23, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

1 comment:
Ert þú nokkuð í The Biggest Loser Australia???
Annars gott hjá þér, nammigrís, ótrúlegt en satt þá borða ég eiginlega ekkert nammi og drekk ekkert gos þegar ég er hérna úti í Kanada!
Keep it up dough-boy
Post a Comment