Sunday, April 27, 2008

Einn í koti?

Já nú er maður búinn að vera einn í koti síðan Elísabet og Tómas héldu á vit ævintýranna á Gullnu Ströndina í gær. Þar ætla þau að vera í heimsókn hjá Maríu og Sigurþór, reyna að surfa og sleikja sólina aðeins áður en Elísabet fer vonandi að vinna. Já það styttist í að hún fái svarið frá Registration Board hérna í NSW, 9 apríl. Svo fylgist spennt með.

Annars var ég að klára þjóðhagfræðipróf á netinu, skilaði sér í 15 réttum af 20 mögulegum, sem er svo sem viðunandi. Annað próf á fimmtudaginn, miðsvetrarpróf sem veldur smá kvíða, en það þýðir víst lítið annað en að læra og læra þangað til. Var uppí skóla í dag að læra með Nathan og Michael, local strákum sem báðu mig um að vera með sér í einhverri keppni milli skóla, og eigum við að flytja fyrirlestu á föstudaginn um samruna einhverra stálfyrirtækja hérna í Ástralíu. Gaman að fara aðeins út f. námsefnið, skemmtilegt verkefni en því miður að þá náðum við ekki langt í dag, sem þýðir bara meiri vinna næsta fimmtudag. Svo á ég eftir að redda mér jakkafötum, já það eru víst skilyrðin þegar við höldum kynninguna.

En nú er langt liðið á kvöldið, ætla að fara að lúlla,

Góða nótt,

Himmi

1 comment:

Freon said...

Gott að sjá bloggið á lífi aftur. Haltu áfram að spýta í lófana!!!