Markus Klinger frá Austurríki segir að íslendingar kunni ekki að mótmæla og hafi því ákveðið að leggja sitt á vogarskálarnar.
Var á spjalli við svisslending og þjóðverja nú í vikunni og þegar umræðan kom að Íslandi og þeim vandræðum sem við glímum við að þá höfðu þeir ekki hugmynd aðra en þá að Ísland væri gjaldþrota og í alvarlegri fjármálakreppu. Annað hvort var áhuginn ekki meiri, umfjöllunin ekki næg eða önnur skýring. En þegar ég sagði þeim frá hryðjuverkalögunum og að við hefðu verið á palli með Sýrlandi og fleiri löndum að þá ráku þeir upp stór augu og fannst það ótrúlegt. Trúðu því ekki að nokkur þjóð léti þetta yfir sig ganga og hvað þá að einhver þjóð skuli leggja slíkt á aðra vestræna þjóð, svo ekki sé talað um aflsmuna misræmi sem þeim fannst vega mikið einnig.
En já þetta segir mér að við íslendingar erum ekki góð í því að mótmæla, látum yfir okkur ganga. Að sjálfsögðu ættum við að reyna að koma þessu á framfæri einsog mögulegt er, til að gera grein fyrir mikilvægi málsins og auðvelda íslandi í að byggja upp orðspor sitt. En því miður að þá eru spunameistarar ríkistjórnarinnar ekki betri en svo að þeir telja að þegja þunnu hljóði og vona að eitthvað gerist sé betra en að svara fullum hálsi? Sama hvert valið verður að þá held ég að íslendingar eigi nóg inni og þegar þjóðir heims átta sig á hversu alvarleg og innantómi þessarar ákvörðunar Breta (lesist og skiljist sem Brown og Darling) og þá fáum við uppreisn æru.
Nú er um að gera að fara að byggja upp ímynd Íslands, markaðsetja landið sem mest og játa mistök okkar að hafa ætlað að gleypa heiminn og ætlað að verða eitthvað fjármálaveldi. Við þurfum að vinna í því að fá jákvæðan stimpil á Ísland aftur, og vera þekkt fyrir eitthvað annað en bara fisk. Allstaðar þar sem ég kem um að þá talar fólk um hvað íslendingar hafa takmarkað úti í heimi miðað við fólksfjölda. Við eigum fleiri heimsþekkta listamenn heldur en margar stórþjóðir, við eigum einhverjar stærstu ósnertu náttúruauðlindir í vestrænum heimi (einkum þó Evrópu) og við ættum alveg að geta markaðsett Ísland sem náttúruparadís en ekki álversverkamenn og með innflutta pólverja að verka fist. Reynum nú að finna okkar ost og úr einsog Svisslendingar eru þekktir fyrir, eða okkar verkfræði sem Þjóðverjar eru þekktir fyrir.
Kveðja úr suðrinu,
Himmi
Check this out www.picasaweb.com/himmi78

No comments:
Post a Comment