...já það er langt síðan ég settist fyrir framan tölvu síðast og hripaði niður misgáfuleg orð á netið svo ég ætla ekki að hafa þetta of langt núna.En það var skálað í bjór eftir að maður kláraði prófin f tveim vikum síðan.....og síðan er ég búinn að vera misduglegur, eða segjum frekar að ég hafi verið að endurhlaða batteríin.
Luke félagi minn, kynnti mig fljótlega eftir komu mína hingað til Ástralíu f. Hahn bjórnum. Fjöldinn allur af tegundum er til og ef ég er ekki með Light (sem er nokkurskonar pilsner) að þá er það Super Dry sem verður fyrir valinu. Ekki hef ég séð Fosters sem á víst að vera frægasti bjór Ástrala hér....hann er kannski bara frægastur fyrir utan landsteinana. En það skemmtilega við að drekka Hahn er að þegar maður er búinn að skrúfa tappann af að þá bíður maður spenntur eftir að fá að vita hvaða visku tappinn býður uppá í þetta skiptið. En einhver snillingur hefur fattað það að unga menn þyrstir í þekkingu eins mikið og þá þyrstir í bjór og hvað er betra en að fá gagnslausar upplýsingar í verðlaun í hvert skipti sem maður fær sér bjór....og ef til vill fær maður sér þá fleiri bjóra fyrir vikið....en þannig á marketing að virka, auka söluna.
Fyrir mann einsog mig sem er mikill áhugamaður um gagnslausar upplýsingar að þá svínvirkar þessi markaðsherferð. Í kvöld þegar ég fékk mér bjórinn minn að þá leyndist ein sem fer svo sannarlega í safnið. En vissuð þið það að....."Buzz Aldrins mother´s maiden name was Moon"? Og af hverju er það svona merkilegt....jú af því allt síðan ég komst að því að Buzz nokkur Aldrin hefði verið svo heppinn að vera annar maðurinn til að stíga fæti á tunglið (e. Moon) að þá hef ég viljað afla mér meiri upplýsinga um hann. Allir vilja jú vita um þann sem var fyrstur....nema þú sért Hilmar Ingimundarson.
Takk fyrir í dag,
Himmi
"The second one is the first looser" unknown
Check this out www.picasaweb.com/himmi78

2 comments:
Gott að vita að þú ert allavegana á lífi eftir lesturinn! Cheers for useless information
Tékkaðu á viðtali Ali G við Bósa Ljósár!
http://www.youtube.com/watch?v=hTKedyQQkZQ
Post a Comment